HugLEIÐSLUDAGUR UNGA FÓLKSINS
Vertu með þann 9. október í 3 mínútna hugleiðslu fyrir frið í hjarta!
Allir mega vera með hvar sem er kl 10:30 eða samdægurs!
Sköpum friðarbylgju í hjörtum!
Markmið dagsins er að sameina ungt fólk (6-16 ára) í 3 mínútna hugleiðslu í skólum hérlendis og erlendis (við vitum að kennarar Vinyasa Yoga for Youth í Kanada verða með að einhverju leyti eins og í fyrra innan sinna skólahópa).
Við erum að vekja athygli á hugleiðslu sem leið til að ma. skapa innri frið, finna innri náttúrulega gleði, vinna úr tilfinningum, kvíða, streitu og vanlíðan hjá ungu fólki og gera þau að sterkari einstaklingum.
Sama dag er afmælisdagur John Lennon, þess mikla friðarsinna og verður kveikt á friðarsúlunni um kvöldið í Viðey.
Þér gefst einnig tækifæri á að styrkja okkur með millifærslu á þennan reikning: Kt. 510414-1010 - Reikn. 526-14-403558.
Okkar bestu hjartans kveðjur,
Verkefnastjórn Jógahjartans